Staðarreglur Híh
Regla 1 - Mulligan
Við upphaf leiks hefur leikmaður kost á að hefja leik að nýju ef fyrsta högg er afleitt. Kjósi leikmaður að taka Mulligan verður hann að nota seinni boltann - ekki má hætta við eftir á og nota fyrsta boltann ef Mulligan er tekinn.
Regla 2 - Úrval Útsýn reglan
Finnist bolti ekki má taka Úrval Útsýn víti, þ.a. bolti lagður á braut þar sem hollið telur líklegast að hann hefði átt að vera. Tvö högg í víti.
Regla 3 - Refsipútt
Talning pútta hefst þegar fyrsta pútt er framkvæmt á flöt. Refsipútt er fjöldi pútta umfram tvö á holu. Hámarksfjöldi refsipútta á hring er 5 (dæmi: Leikmaður þrípúttar á 7 holum sem gera 7 refsipútt. Öll eru þau skráð, en greitt er í púttsjóð fyrir hámark 5 pútt)