Um HíH

Upphafið

Hvernig varð HíH til

Á meistaramóti GR árið 2015 léku þessar þrjár saman á lokadegi mótsins og skipuðu þrjú efstu sætin að lokum í mótinu. Þetta voru þær Ágústa, Ragga og Ólöf. Þær náðu vel saman og ákváðu í kjölfarið að stofna kvennahóp sem nefndur var Hola í höggi. Þær smöluðu síðan í hópinn vinkonum, frænkum, mágkonum og jafnvel ókunnugum konum sem þær kynntust bara á vellinum.

Stjórn

Stjórn HíH

Formenn frá upphafi:
2017 - 2021: Ólöf
2021 - 2024 Gunna M
2024 - ? Sigrún Hallgríms.
Kristín Elfa er æviráðinn gjaldkeri.