Allir 18 holu miðvikudagshringir eru gildir í punktamótinu. Sú sem er með flesta samanlagða punkta á 6 bestu hringjunum er krýnd HíH sumarmeistari.
Allir fuglar (og ernir) í HíH mótum/hringjum skráðir. Sú sem fær flesta fugla á sumri hlýtur titilinn fugladrottning HíH.
Öll pútt umfram tvö á holu kosta 100 krónur. Hámarkssekt per hring er 500 krónur. Skróp kostar 300 krónur. Sjóðurinn er nýttur í veitingar o.fl. á Lokahófi HíH.
HíH reynir að hafa a.m.k. tvö mót á sumri utan GR. Einnig hefur HíH tekið þátt í liðakeppni GR. Lokahóf HíH er venjulega haldið í sumarbústað í septemberbyrjun. Þá er keppt á velli nálægt bústað og sumarið síðan gert upp með viðeigandi verðlaunum og húrrahrópum.